22. apríl 2014
Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir
Í dag hófst rafræn atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir starfsmanna hjá fyrirtækjum í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Eins og áður hefur komið fram hafa SFR og Sjúkraliðafélagið haft samstarf í kjarasamningsviðræðum við SFV, en samningaviðræður hafa ekki gengið sem skyldi. Á fjölmennum fundi fyrir páska var ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslan hófst í dag en henni lýkur á hádegi næstkomandi fimmtudaginn, þ.e. sumardaginn fyrsta. Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér rétt sinn og taka þátt í kosningu um verkfallsaðgerðir.
Þau fyrirtæki sem tilheyra Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) eru: Ás, Dalbær, Eir, Garðvangur, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún og Sunnuhlíð/Vigdísarholti.