Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. maí 2014

Stefnir í boðað verkfall - Opinn fundur 12. maí kl. 9

SFR stéttarfélag og Sjúkraliðafélag Íslands hafa sameiginlega átt í kjaraviðræðum við SFV en fundað hefur verið stíft síðustu daga. Lítið hefur þokast í samningsátt og flest mál eru enn óútkljáð. Því stefnir að óbreyttu í boðað verkfall næsta mánudag þann 12. maí. Þá munu allir félagsmenn SFR og sjúkraliðar hjá SFV leggja niður störf á tímabilinu frá kl. 8.00 til kl. 16.00.

SFR og SLFÍ munu opna verkfallsmiðstöð að Grettisgötu 89 (fyrstu hæð) á verkfallsdaginn 12. maí frá kl. 8.00 til kl. 16.00.

Dagskráin þar verður:
8.00 til 9.00            Kaffi, kleinur og spjall
9.00 til 10.00          Opinn fundur, upplýsingar og skipulag hópa í verkfallsvörslu
10.00 til 16.00        Hópar að störfum í  í verkfallsvörslu og verkfallsmiðstöðin opin
16.00 til 17.00        Verkfallsvörsluhópar koma í miðstöðina og skila af sér. Kaffi og meðlæti.

Eins og að ofan segir þá verður verkfallsvarsla skipulögð á fundinum og því er mikilvægt að sem flestir félagsmenn komi á fundinn (kl. 9 þann 12. maí, Grettisgötu 89, 1. hæð). Yfir daginn er síðan einnig mikilvægt að líta við í miðstöðinni og fá upplýsingar um gang mála við verkfallsvörslu og nánari upplýsingar.

Það er von SFR - stéttarfélags að samningar náist fyrir 12. maí og að ekki þurfi að koma til verkfalla. Ef hins vegar til verkfalla kemur þá mun stjórn Vinnudeilusjóðs SFR fjalla um bætur til þeirra félagsmanna sem verða fyrir launatapi. 

 

Tímasetning boðaðra verkfalla:

  • Á tímabilinu frá kl. 08:00 til kl. 16:00, mánudaginn 12. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SFV leggja niður störf.
  • Á tímabilinu frá kl. 08:00 til kl. 16:00, fimmtudagur 15. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SFV leggja niður störf.
  • Á tímabilinu frá kl. 00:00 til kl. 24:00, mánudaginn 19. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SVF leggja niður störf.
  • Kl. 08:00 fimmtudaginn 22. maí 2014 hefst allsherjarverkfall allra félagsmanna SFR hjá SFV sem mun standa þar til annað verður ákveðið.

Þær stofnanir sem eru aðilar að Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu eru: Ás, Dalbær, Eir, Garðvangur, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún, Krabbameinsfélagið og Sunnuhlíð/Vigdísarholt.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)