Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

18. maí 2014

Verkfall hefst á miðnætti - ný facebook síða

Verkfall starfsmanna hjá fyrirtækjum í SFV hefst á miðnætti í kvöld og stendur í sólarhring. Samninganefndir aðila hafa fundað stíft þessa helgi án þess að ná samkomulagi. Samninganefnd SFR og SLFI í kjarabaráttunni við SFV, hefur opnað nýja fésbókarsíðu. Þar er ætlunin að koma á framfæri fréttum og upplýsingum um gang mála með fljótum og skjótvirkum hætti.

Þeir sem áhuga hafa á að fá fréttir af síðunni geta farið inn á hana (http://www.facebook.com/verkfall) og „lækað“ síðuna. Þá munu fréttir af henni birtast jafnóðum á fésbókarsíðum félagsmanna sem nota þennan samfélagsmiðil. Vonandi nýtist þetta þeim sem vilja fá fréttir fljótt og örugglega af gangi mála.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)