26. maí 2014
Kjarasamningur SFR og SFV - Atkvæðagreiðsla og kynning
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SFR og SFV fer fram á netinu með rafrænum hætti og hefst
27. maí kl. 17:00 og lýkur 3. júní kl. 12:00. Kjarasamningurinn gildir frá 1. mars 2014 til 30. apríl 2015. Einnig var undirritaður nýr stofnanasamningur þar sem en þar kemur ný grunnröðun launa. Kynningafundir um kjarasamninginn verða:
• Þriðjudagur 27. maí kl. 16, Grettisgötu 89, 1. hæð, BSRB húsinu.
• Þriðjudagur 27. maí kl. 17:30, SÁÁ, Efstaleiti 7
• Miðvikudagur 28. maí kl. 9:30, HNLFÍ í Hveragerði
SFV - Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu gera kjarasamning fyrir hönd eftirtalinna stofnana: Ás, Eir, Grund, Hamrar, HNLFÍ, Hrafnista (Reykjavík, Hafnarfirði, Hlévangi, Hrafnista, Nesvellir), Krabbameinsfélagið,
Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Vigdísarholt)