Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

3. júní 2014

Hótelmiðar komnir í sölu á orlofsvefnum

Hótel Edda LaugumHægt er að kaupa hótelmiða á Fosshótel og Edduhótel hér á orlofsvefnum undir liðnum „ávísanir“. Hver félagsmaður getur keypt mest 7 miða. Miðarnir eru til sölu frá byrjun júní fram í ágúst. Félagsmenn eru hvattir til að panta gistingu með góðum fyrirvara og taka skal fram að greitt sé með gistimiða. Sjá nánari upplýsingar á www.fosshotel.is og á www.hoteledda.is.

Fosshótel
Sumarið 2014 gilda gistimiðar á Fosshótel fyrir 2 í gistingu í tveggja manna herbergi með baði í eina nótt. Að þessu sinni kaupa félagsmenn einn miða fyrir hverja gistinótt á 12.800 kr. Morgunverður er innifalinn. Aukarúm kostar kr. 5.500 (1 barn undir 12 ára aldri fær frítt í herbergi með foreldri/um).

Félagsmenn bóka sjálfir í síma viðkomandi hótels eða á aðalskrifstofu Fosshótela 562-4000. Bókanir má einnig senda á netfangið bokun@fosshotel.is . Ekki er hægt að bóka í gegnum bókunarvél á heimasíðu Fosshótelana. 

Edduhótel
Verð fyrir félagsmenn sumarið 2014: Herb. með handlaug 7.300 kr.  -  Herb. með baði 15.400 kr.  -  Herb. Edda plús 18.400 kr. Miðar á þessu verði eru aðeins bókanlegir í gegnum síma 444 4000 eða tölvupóst hjá bókunardeild Hótel Eddu. Þeir eru ekki bókanlegir á netinu. Greiðslumiðana má nota á öllum Edduhótelunum sem eru 12 hringinn í kring um landið. Sjá heimasiðu www.hoteledda.is

Á Edduhótelunum er boðið upp á fjölbreyttar veitingar. Börn 5 ára og yngri fá frían mat ef þau panta það sama og foreldrar. Börn 6-12 ára greiða ½ gjald fyrir mat ef þau panta það sama og foreldrar. Gestir sjá sjálfir um að bóka gistingu. 

 

Sjá nánar hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)