Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

23. júní 2014

Hægt miðað í samningum við Samband íslenskra sveitarfélaga

Hægt hefur miðað í viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga en kjarasamningurinn rann út 30. apríl síðast liðinn. Líkt og í fyrri samningum hefur SFR stéttarfélag farið í sameiginlegar kjaraviðræður með BSRB félögunum sem starfa hjá sveitarfélögum. Það er alveg ljóst að við getum ekki við það unað að Sambandið gangi frá hverjum kjarasamningnum á fætur öðrum með verulegum kjarabótum en ætli síðan að bjóða félagsmönnum aðildarfélaga BSRB allt annað. Krafa stéttarfélaganna er skýr, sambærilegar launahækkanir og aðrir viðsemjendur Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa fengið, svo sem grunnskólakennarar, BHM og nú síðast leikskólakennarar.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)