Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

10. september 2014

Harðari áherslur í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar

Arni við skrifborð ...þungur a brunFjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar var kynnt í gær en þar koma fram helstu áherslur stjórnarinnar fyrir næsta ár. Árni Stefán Jónsson formaður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu, er meðal þeirra sem eru ekki hrifnir af því sem þar birtist.

„Hér er augljóslega á ferðinni frumvarp sem boðar nýjar og harðari áherslur. Litla manninum og þeim sem minna mega sín er hér hreinlega ýtt til hliðar m.a. með niðurskurði til Vinnumálastofnunar og ekki síst með hækkunum á virðisaukaskatti á mat- og nauðsynjavöru,“ segir Árni Stefán Jónsson formaður SFR stéttarfélag í almannaþjónustu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gær.

Árni segir breytingar á virðisaukakerfinu í þá veru að hækka lægra þrepið úr 7% í 12% vera alvarleg tíðindi. „Þetta þýðir umtalsverða hækkun á matvöru og nauðsynjavörum. Lækkun efra þrepsins um rúmt % nær ekki að jafna það og heldur ekki lækkun á vörugjaldi. Mér sýnist forgangsröðin minna óþægilega mikið á árin á undan hruninu. Nauðsynjar hækka umtalsvert og það sem í raun gerist er að þeir efnaminnstu borga meira en lækkun á ísskápum og hljómflutningsgræjum kemur þeim ekki til góða. Þessar áherslur eru sannarlega ekki vænlegar sem innlegg inn í næstu kjarasamningsviðræður, en eins og fólk man þá eru flest félög með stutta samninga sem verða lausir snemma næsta vor.“

„Þá veldur niðurskurður á fjármunum til stofnana okkur einnig áhyggjum,“ segir Árni. Hann segir augljóst að miðað við þetta fjárlagafrumvarp megi búast við þó nokkrum uppsögnum hjá Umboðsmanni skuldara, Sérstökum saksóknara og Vinnumálastofnum. „Við vissum að einhver niðurskurður yrði í ljósi verkefnastöðu en þetta er stærra en við áttum von á. Þá undrar það mig að Skattrannsóknarstjóri skuli einnig vera í þessum hópi, en þar virðist eiga að skera mikið niður. Þetta finnst mér undarlegt í ljósi umræðu um skattsvik og undanskot og þær áherslur undanfarinna missera að reyna að ná sem best utan um þau mál.“

„Að lokum verð ég að árétta það enn og aftur að mig undrar það að eitt árið enn skuli lagt fram fjárlagafrumvarp þar sem hvergi er gerð tilraun til þess að greiða niður skuldir ríkisins til ríkisstarfsmanna. Þetta verður að teljast forkastanlegt að ríkið víki sér undan ábyrgð sinni á skuldbindingum sínum til lífeyrissjóða ríkisstarfsmanna með þessum hætti.“

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)