22. september 2014
Námsvísir Starfsmenntar veturinn 2014-2015 kominn út
Fræðslusetrið Starfsmennt hefur gefið út nýjan og glæsilegan námsvísi fyrir veturinn 2014 - 2015 sem verður borinn út til allra félagsmanna SFR innan skamms, en þjónusta Starfsmenntar er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Bæklingurinn er hér á rafrænu formi og hvetjum við alla til að kynna sér fjölbreytt úrval námskeiða sem verður í boði í vetur.
Vakin er athygli á þeirri nýjung að fjöldi námskeiða verður í boði í fjarkennslu með sendingum beint í tölvur einstaka þátttakenda. Þetta þýðir að námskeiðin verða í boði á landinu öllu og fjarkennslan ekki háð fjölda þátttakenda utan höfuðborgarsvæðisins.