Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

1. október 2014

Málþing Sambands lífeyrisþega ríkis og bæja

SLRB logoÞann 13. október mun Samband lífeyrisþega ríkis og bæja efna til málþings þar sem fjögur erindi er varða hin ýmsu málefni lífeyrisþega verða flutt. Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs, Ingibjörg Hjaltadóttir sérfræðingur í öldrunarhjúkrun á Landspítala og Erna Indriðadóttir fjölmiðlakona munu allar flytja erindi en ítarlegri dagskrá málþingsins má sjá hér að neðan.

Allir áhugasamir eru velkomnir á málþingið sem fer fram kl. 13 þann 13. október í húsi BSRB að Grettisgötu 89. Að loknum erindunum munu fyrirlesarar svara spurningum viðstaddra. SLRB mun svo bjóða upp á veitingar að málþinginu loknu en gert er ráð fyrir að dagskrá verði lokið um kl. 15.

 

Dagskrá:

 

13:00 Setning – Elín Brimdís Einarsdóttir, formaður SLRB

 

13:05 Áunnin réttindi og almannatryggingar – Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB

 

13:30 Aldursvæn Reykjavík. Hvað er nú það? – Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs

 

13:50 Hvað skiptir mestu máli við val á hjúkrunarheimili, fallegt hús eða góð hjúkrun? – Ingibjörg Hjaltadóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun á Landspítala

 

14:15 Erum ekki komin í ruslaflokk? – Erna Indriðadóttir, fjölmiðlakona

 

14:45 Kaffi í boði Sambands lífeyrisþega ríkis og bæja

 

Fundarstjóri: Ágúst Bogason, kynningarfulltrúi BSRB

 

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)