16. október 2014
Trúnaðarmannaráð SFR fundar
Nú stendur yfir fundur Trúnaðarmannaráðs þar sem fulltrúar félagsins hlýða m.a. á fyrirlestur Sigríðar Benediktsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands. Í erindi sínu fjallaði hún m.a. um gjaldeyris- og fjármagnshöft, skuldastöðu heimilanna og rakti þróunina frá því fyrir hrun.
Góður rómur var gerður að erindi Sigríðar en henni þótti takast vel til við að lýsa efnahagsástandinu á mannamáli, eins og Árni Stefán Jónsson formaður komst að orði. Á fundinn kom einnig Pétur Guðjónsson og greindi frá mannúðarverkefnum á Haití en SFR hefur meðal annarra styrkt verkefnið. Þá mun Þórey Einarsdóttir stjórnarkona í SFR flytja stutt erindi og að lokum mun Árni Stefán greina frá stöðunni í kjaramálum.
Fundurinn er fjölmennur að vanda en trúnaðarmenn félagsins hafa verið duglegir að sækja reglulega fundi ráðsins og þar skapast jafnan góðar umræður sem eru nauðsynlegar, enda eru tengsl trúnaðarmanna sín á milli og við stjórn og skrifstofu félagsins afar mikilvæg.