Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

17. nóvember 2014

Undirbúningur aðventu í Munaðarnesi

Laugardaginn 29. nóvember er boðið upp á námskeið í aðventukransagerð. Tilvalið fyrir saumaklúbba eða litla hópa að koma saman og föndra fyrir jólin. Hægt er að velja um tvær leiðir á þessu námskeiði.

  1. Verð kr. 2.500: Innifalið í verði er sýnikennsla á aðventuskreytingum, kaffi og smákökur.
  2. Verð kr. 6.000: Innifalið í verði er sýnikennsla á aðventuskreytingum, kaffi og smákökur,
    ásamt grunnefni í aðventukrans þ.e kransaundirlag, vír, greni, kertahöldur og glært lakk.

Börkur og Helena sem reka Munaðarnes Restaurant ætla að bjóða upp á smá jólahlaðborð að loknu föndri. Í boði verður:

  • Reyktur og grafinn lax
  • Síld og rúgbrauð
  • Sveitapaté
  • Reykt nautatunga
  • Purusteik
  • Ris ala mande

Verð kr 4.200 á manninn

Lokaskráning er miðvikudaginn 26. nóvember annað hvort hér á facebook eða í síma 852 1601.

Taka þarf fram hvora leiðina á námskeiðinu þið kjósið að fara og hvort þið ætlið að koma í kvöldmat.

Greiðslu þarf að leggja inn fyrir þessa dagsetningu vegna námskeiðsins í síðasta lagi 26. nóvember.

Upplýsingar um greiðslu verða sendar í tölvupósti við skráningu. Við skráningu þarf að gefa upp netfang þannig að hægt sé að senda upplýsingar um námskeiðið til ykkar.

Hægt verður að borga í matinn á staðnum en panta þarf í síðasta lagi miðvikudaginn 26. nóvember.

Hlökkum til að sjá sjá ykkur í jólafíling.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)