4. desember 2014
SFR styrkir gott málefni
Stjórn SFR ákvað á fundi sínum nýverið að í stað þess að senda jólakort þá myndi félagið styrkja góð málefni, en þessi háttur var einnig hafður á í fyrra. Fulltrúar Samhjálpar og Hjálparstarfs kirkjunnar, þeir Bjarni Gíslason og Vörður Leví Traustasson komu af þessu tilefni og tóku við styrkjum frá félaginu, það var Árni Stefán Jónsson formaður SFR sem afhenti styrkina.