Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

9. desember 2014

Jólin, jólin koma brátt... og vorönnin hjá Starfsmennt líka

 Í nýútkomnu fréttabréfi Starfsmenntar kemur fram að núá næstu vikum er kjörið að huga að námi á nýju ári og skoða hvað verður í boði hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt á vorönninni. Skráningarsíður fyrir öll námskeið hafa verið settar upp og ekkert því til fyrirstöðu að skoða úrvalið og skrá sig.  Setrið er einnig í samstarfi við nokkra skóla um hagnýtar námsleiðir sem efla fagmennsku og möguleika á spennandi starfsþróun. Þeir sem vilja nýta sér það þurfa að hafa hraðar hendur þar sem umsóknarfrestur rennur yfirleitt út nokkru fyrir jól.

Við minnum á að Starfsmennt greiðir innritunar- og einingagjöld fyrir félagsmenn SFR.

Nánari upplýsingar í veffréttabréfi Starfsmenntar.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)