9. janúar 2015
Úthlutunarreglur styrktar og sjúkrasjóðs endurskoðaðar
Úthlutunarreglur Styrktar og sjúkrasjóðs SFR voru endurskoðaðar núna um áramótin. Helstu breytingarnar eru þær að sjúkraþjálfun og nudd hækkar upp í 2.000 kr. skiptið í stað 1.500 kr. og núna er hægt að sækja um styrk vegna linsukaupa. Þá var fjöldi daga sem styrktur á Heilsustofnun NFLÍ fjölgað upp í 28, var áður 20. Gerð var breyting á tannlæknastyrknum þannig að núna er endurgreitt 50% af kostnaði sem er umfram 80.000 kr., þó að hámarki 80.000 kr. (var áður 30%).
Sjá úthlutunarreglur hér.