27. janúar 2015
Félagsráð fundar
Nú stendur yfir fundur Félagsráðs SFR. Félagsráð mynda stjórn félagsins, formenn fagfélaga og lífeyrisdeildar auk 15 fulltrúa sem kosnir eru af trúnaðarmannaráði.
Ráðið fundar tvisvar sinnum á ári og er hlutverk þess meðal annars að vinna að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins.
Sú er einmitt dagskrá fundarins í dag og hafa fulltrúar þess setið við síðan í morgun. Það var Haraldur Hjaltason ráðgjafi sem stýrði vinnunni en stemmningin er sem fyrr afar góð og umræðurnar gagnlegar.
Auk þess var rætt um kjarasamningsviðræður framundan, en kröfugerð félagsins verður lögð fyrir trúnaðarmannaráð þann 10. febrúar næstkomandi.