2. febrúar 2015
Kynningarfundir um frekara samstarf SFR og FFR næstu daga
SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og Félag flugmálastarfsmanna ríkisins stóðu sameiginlega að gerð kjarasamninga við Isavia ohf árin 2011 og 2014. Eftirfylgd samninganna hefur einnig verið unnin í samvinnu. Þetta samstarf hefur verið mjög jákvætt og hefur styrkt félögin gagnvart atvinnurekanda. Undanfarna mánuði hefur stjórn FFR átt í viðræðum við SFR um samning varðandi sameiginlegan rekstur og þjónustu félaganna. Fulltrúar stjórna beggja félaga hafa unnið að samningsgerð og drögin hafa verið samþykkt af stjórn SFR með fyrirvara. Samningsdrögin verða kynnt félagsmönnum FFR og SFR á næstunni, en fyrirhugaðir kynningarfundir fyrir starfsfólk Isavia eru sem hér segir:
Tímasetning kynningarfunda
Keflavíkurflugvöllur:
Þriðjudagur 3. febrúar kl. 17:30 í kaffistofu vopnaleitar á annarri hæð í FLE.
Þriðjudagur 3. febrúar kl. 20:00 í íþróttahúsi við slökkvistöð.
Miðvikudagur 4. febrúar kl. 17:30 í kaffistofu vopnaleitar á annarri hæð í FLE.
Miðvikudagur 4. febrúar kl. 20:00 í íþróttahúsi við slökkvistöð.
Reykjavík:
Fimmtudag 5. febrúar kl. 12:00 í Fræðslusetri stofu 1.
Föstudag 6. febrúar kl. 12:00 í Fræðslusetri stofu 1.