Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

10. febrúar 2015

Trúnaðarmannaráð ályktar

Trúnaðarmannaráð sem fundaði í dag sendi frá sér ályktun um kjaramál, þar er m.a. lögð áhersla á verulega hækkun lægstu launa og millitekjur auk styttingu vinnuvikunnar. Á fundinum hélt Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ fróðlegt erindi um launaþróun hér á landi og sýndi sláandi niðurstöður um samanburð á launum hér á landi og á hinum norðurlöndunum. Í máli hans kom m.a. fram að laun verkafólks og þeirra sem starfa við þjónustustörf eru langtum lægri hér en á hinum Norðurlöndunum, þrátt fyrir að tekið hefði verið tillit til verðlags og skatta.

Trúnaðarmenn unnu að kröfugerð félagsins en áherslur hennar eru meðal annars fengnar frá fundi félagsráðs, trúnaðarmönnum og frá morgunverðarfundum sem haldnir hafa verið með almennum félagsmönnum. Kröfugerðin verður birt á næstu vikum.

Ályktun trúnaðarmannaráðs SFR þann 10. febrúar 2015

Trúnaðarmannaráð SFR telur nauðsynlegt að hækka lægstu laun og millitekjur verulega í næstu kjarasamningum. Næg innistæða er fyrir slíkum hækkunum og munu þær hafa jákvæð áhrif á efnahagslífið. Sporna þarf við aukinni misskiptingu í samfélaginu enda er hún meiri en áður þekktist og veldur hún fátækt. Auka þarf kaupmátt launa þar sem mörg heimili glíma við alvarlegan greiðsluvanda.

Nauðsynlegt er að gefa styttingu vinnuvikunnar aukið vægi í komandi kjarasamningum. Miðað við Norðurlöndin vinna Íslendingar flesta vinnutíma í fullu starfi og leggur trúnaðarmannaráð SFR því áherslu á að tekið verði raunhæf skref í átt að styttingu vinnuviku og þar með fjölskylduvænna vinnuumhverfi.

 

IMG_8834

IMG_8835

IMG_8837

IMG_8838

IMG_8841

IMG_8849

IMG_8833

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)