3. mars 2015
Hádegisfundur í tilefni af baráttudegi kvenna
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars verður hádegisfundur á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 9. mars 2015 kl. 11.45-13.00 í Hvammi.
Á fundinum verður fjallað um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs undir yfirskriftinni Er tími til að njóta lífsins?
Við upphaf fundar verður borin fram tómat- og slasasúpa með grænmeti, kjúklinig, sýrðum rjóma, osti og nachos ásamt kaffi. Verð 2.600 kr.
Sjá auglýsingu hér.
Þrjú erindi verða flutt:
Vinna Íslendingar of mikið?
Ragnheiður Eyjólfsdóttir, verkefnisstjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Rjúkandi rúst? Fæðingarorlof í hruni og endurreisn.
Ingólfur V. Gíslason, lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands.
Samspil heimilis og vinnu meðal íslenskra hjóna.
Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði.
Fundarstjóri verður Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.