5. mars 2015
Orlofsblað og páskaúthlutun
Orlofsblað SFR er nú á leið til félagsmanna í pósti. Í blaðinu er að finna allar upplýsingar um þá orlofsmöguleika sem í boði eru hjá félaginu í sumar ásamt margvíslegum hagnýtum upplýsingum. Í sumar verður í fyrsta sinn boðið upp á að leigja hús á Hvolsvelli og við Drangsnes og margt fleira spennandi. Opnað verður fyrir umsóknir um sumarúthlutun þriðjudaginn 10. mars.
Þá er endurúthlutun páskadaga nú að verða lokið í bili, þ.e.a.s. síðustu geta greitt til miðnættis á föstudag. Fljótlega eftir helgi verða þau hús sem enn eru laus um páska sett á orlofsvefinnog þá geta allir sem vilja bókað sér hús en það kostar punkta eins og áður. Einnig er laust í Kaupmannahöfn um páskana.