13. mars 2015
Páskaeggjabingó fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra
SFR og St.Rv. standa fyrir árlegu páskaeggjabingói laugardaginn 21. mars næstkomandi kl. 14, Grettisgötu 89, 1. hæð. Húsið opnar kl. 13:30. Félagsmenn og fjölskyldur þeirra eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir, en allir aldurshópar geta spilað bingó. Í verðlaun eru páskaegg af öllum stærðum og gerðum. Engin börn fara tómhent heim. Verð fyrir bingóspjald er kr. 400, sem þarf að greiðast í peningum þar sem enginn posi er á staðnum.