Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. mars 2015

Samstarf í kjaraviðræðum

IMG_8963Þrjú stærstu félögin innan BSRB sem semja við ríkið hafa tekið höndum saman og leggja fram sameiginlega kröfugerð í komandi kjarasamningsviðræðum. Þetta eru SFR stéttarfélag í almannaþjónustu sem semur fyrir um 3500 starfsmenn, Landssamband lögreglumanna með rúmlega 600 starfsmenn og Sjúkraliðafélag Íslands með um 1100 starfsmenn hjá ríkinu.

Núverandi aðstæður á vinnumarkaði kalla á sterka viðspyrnu gagnvart viðsemjendum og telja forsvarsmenn félaganna að sá styrkur sem af samstarfinu fæst muni nýtast vel í viðræðunum framundan. Eins og staðan er í dag er líklegra en ekki að til aðgerða þurfi að grípa til að ná fram kröfum félaganna. Enda hafa fulltrúar ríkisins hvorki talað fyrir miklum hækkunum né leiðréttingum á launum ríkisstarfsmanna undanfarna mánuði.

Síðar í dag munu fulltrúar úr saminganefndum félaganna þriggja hitta samninganefnd ríkisins hjá sáttasemjara og leggja fram hugmynd að viðræðuáætlun.

Kröfugerð SFR stéttarfélags, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna verður kynnt á sameiginlegum blaðamannafundi í næstu viku.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)