14. apríl 2015
Hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu - Ráðstefna 21. apríl
Í aðdraganda 1. maí 2015 hafa BSRB og ASÍ tekið höndum saman og ákveðið að halda ráðstefnu, þar sem fjallað verður um hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu.
Ráðstefnan verður send út í streymi. Til að komast inn á streymið fer fólk inn á www.1mai.is í fyrramálið.
Á ráðstefnunni verður farið yfir hlutverk og starf stéttarfélaga og gerð tilraun til að skýra eðli starfsemi þeirra og þjónustuskyldur við félagsmenn. Útgangspunkturinn er að reyna að varpa ljósi á hlutverk þeirra á vinnumarkaði, innri starfsemi, þátt þeirra í kjara- og velferðarmálum, en einnig að líta til mikilvægi þeirra fyrir félagsmenn.
Tekin verða dæmi um styrkjakerfi félaganna, menntkerfin sem þau hafa byggt upp, starf og hlutverk styrktar- og sjúkrasjóða, starfsmenntunarsjóða og annarra sjóða. Einnig verður litið til verkefna sem snúa að annarri þjónustu við félagsmenn, réttindagæslu, almenna aðstoð og málarekstur og með því reynt að lýsa stöðu stéttarfélaga í velferðarsamfélagi.
SKRÁNING Á WWW.1MAI.IS.
Ráðstefna ASÍ og BSRB í aðdraganda 1. maí 2015 kl. 8-10, morgunmatur frá kl. 8-8:20.
Hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu, réttindi á vinnumarkaði og mikilvægur þáttur í velferðarkerfinu
Dagskrá
1. Staða og hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu - Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
2. Stéttarfélögin og félagsmaðurinn
- Árni Stefán Jónsson, formaður SFR og varaformaður BSRB
- Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar
3. Unga fólkið og framtíðin. Hvernig eiga stéttarfélögin að þróast?
- Fulltrúi ASÍ: Ingólfur Björgvin Jónsson
- Fulltrúi BSRB: Þórdís Viborg
Fundarstjórn og samantekt: Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB
Viðbrögð og spurningar: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Helgi Seljan