Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. apríl 2015

Innanríkisráðherra fellst á að funda með SFR um uppsagnir starfsfólks á Samgöngustofu

Í kjölfar þess að SFR gerði alvarlegar athugasemdir við þær aðferðir sem viðhafðar voru við uppsagnir starfsfólks á Samgöngustofu þá hefur innaríkisráðherra fallist á að hitta forsvarsmenn SFR. Á fundinum mun SFR halda á lofti því sjónarmiði að um algjörlega ólöglegar uppsagnir hafi verið að ræða og mun félagið áfram gera kröfu um að uppsagnirnar verði dregnar til baka hið fyrsta.

Félagið hefur sent bréf til forstjóra Samgöngustofu með formlegri kröfu þess efnis að uppsagnirnar verði dregnar til baka enda brjóti þær gegn lögum um hópuppsagnir nr. 63 frá árinu 2000, þar sem mælt er fyrir um skýra og fortakslausa samráðsskyldu atvinnurekanda.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)