Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

28. apríl 2015

Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga hjá LSR

Kynningar- og samráðsfundir fyrir sjóðfélaga á lífeyri

Árlega halda LSR og LH kynningar- og samráðsfundi fyrir lífeyrisþega og maka þeirra. Fundir þessir hafa verið haldnir reglulega í Reykjavík en einnig hefur verið boðað til slíkra funda á nokkrum stöðum á landsbyggðinni.

Samráðsfundur sjóðfélaga á lífeyri verður haldinn þriðjudaginn 5. maí 2015 á Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.

Fundurinn hefst kl 14.

 


Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga

Árlega eru haldnir kynningarfundir fyrir virka sjóðfélaga A- og
B-deild LSR sem og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Sjóðfélagar skrá sig fyrirfram á fundina.

Á fundunum er hægt að fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

Kynningafundir fyrir sjóðfélaga 12. og 13. maí 2015

Hægt er að velja um fjórar tímasetningar:
12.maí kl 8:30-10:00
12.maí kl 16:30-18:00
13.maí kl 8:30-10:00
13.maí kl 16:30-18:00

Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 11. maí nk. með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu. Einnig er hægt að senda inn spurningar, sem óskað er eftir að svarað verði á fundinum.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)