29. apríl 2015
1. maí 2015 - „Ég mæti - En þú?“
Í gegnum tíðina hefur baráttan fyrir bættum lífskjörum skilað árangri með samstöðu og samtakamætti. Róðurinn hefur oft verið þungur en með öflugri samstöðu og einurð félagsmanna höfum við saman náð árangri skref fyrir skref. Framundan er 1. maí sem er baráttu- og hátíðisdagur okkar launafólks og þá gefst okkur frábært tækifæri til þess að sýna að styrk okkar eru engin takmörk sett.
Við viljum því biðja þig að koma og ganga með okkur í 1. maí göngunni í ár undir kjörorðunum JÖFNUÐUR BÝR TIL BETRA SAMFÉLAG!
Komdu og gakktu með okkur skref fyrir skref í átt til betri lífskjara okkur öllum til heilla - því þú skiptir máli!