Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

13. maí 2015

Af kjarasamningsviðræðum

Kjarasamningar SFR við ríki, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu) eru lausir frá og með1. maí. Kjarasamningsviðræður við ríkið eru fyrir nokkru síðanhafnar og er SFR í samstarfi við Sjúkraliðafélag Íslands og Landssamband lögreglumanna í þeim viðræðum. Kröfugerðir félaganna hafa verið lagðar fram og nokkrir fundir hafa þegar verið haldnir. Þá hafa starfshópur fulltrúa viðsemjenda og félaganna hafist handa við að skoða launaþróun í tengslum við endurnýju launataflanna. Í morgun var síðan samráðsfundur BSRB, BHM og KÍ þar sem gangur kjarasamningsviðræðna var m.a. ræddur.

Næstu vikur má búast við að fundað verði áfram en viðræður við aðra aðila munu hefjast um leið og þær samningaviðræðum sem nú eru í gangi skýrast.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)