Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

20. maí 2015

Trúnaðarmenn funda

truno3190515Trúnaðarmannaráð SFR fundaði í gær og fór Árni Stefán Jónsson formaður SFR þar meðal annars ítarlega yfir gang kjaraviðræðnanna. Þó nokkrir fundir hafa þegar verið með saminganefnd ríkisins og samstarfsfélögum SFR, en SFR er í samstarfi við Landssamband lögreglumanna og Sjúkraliðafélag Íslands í kjarasamningsviðræðum við ríkið.

Á fundinum var Guðmundur Hörður Guðmundsson fyrrverandi formaður Landverndar einnig með afar fróðlegt erindi um auðlindir og arðinn af þeim, en hann vill tryggja að það sé þjóðin sem njóti góðs af arðinum af auðlindunum en ekki einstaklingar eða fyrirtæki. Þá voru fulltrúar SFR á þing BSRB í haust valdir og minnt var á að trúnaðarmannakosning stendur enn yfir á vinnustöðum, en henni lýkur 31. maí næstkomandi. 

truno1190515

truno2190515

truno4190515

truno5190515

truno6190515

truno7190515

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)