Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

17. ágúst 2015

Fréttir af samningamálum

Fulltrúar úr viðræðu- og samninganefndum SFR, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna hittust á fundi í dag. Þar var m.a. farið yfir úrskurð Gerðardóms í málum BHM og Félags ísl. hjúkrunarfræðinga sem birtur var á föstudag.

Nú í ágúst hafa verið haldnir þrír fundir með viðsemjendum þar sem bæði sérmál og heildarsamningar hafa verið á dagskrá. Lítið hefur þokast í samningsátt og ljóst að allir aðilar málsins hafa beðið úrskurðar Gerðardóms. Næsti fundur samninganefnda félaganna með viðsemjendum verður á miðvikudag undir verkstjórn sáttasemjara. Gert er ráð fyrir að þar verði til umræðu áhrif Gerðardóms á áframhaldandi samningsgerð félaganna við ríkið.

IMG_0175

 IMG_0180

IMG_0177

 

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)