Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

4. september 2015

Ný íbúð í Kaupmannahöfn

20150827_154546 (Copy)SFR hefur nú tekið á leigu nýja íbúð í Kaupmannahöfn í eitt ár í stað þeirrar sem við höfðum áður. Nýja íbúðin er staðsett á Grækenlandsvej á Amager og er stutt frá miðbænum með almenningsvagni. Þá er einnig hægt að taka almenningsvagn frá Kastrup flugvelli til þess að komast á Grekenlandsvej.

Íbúðin er mjög skemmtileg og björt  og skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með sturtu. Annað svefnherbergið er undir stofunni og er hringstigi þaðan niður í bjart og fínt herbergi. Hitt herbergið er inn af eldhúsinu á hæðinni. Hægt er að breyta stofusófanum í svefnaðstöðu og er þá svefnpláss fyrir allt að 6 manns.

Fyrir utan fjölbýlishúsið eru næg bílastæði án gjaldskyldu.

Eins og áður er hægt að bóka íbúðina í Kaupmannahöfn á orlofsvefnum og er opnað fyrir bókanir fjóra mánuði fram í tímann. Lykla verður að sækja og skila á skrifstofu SFR. Nánari upplýsingar má finna á orlofsvefnum.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)