Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

9. september 2015

Samningafundi lauk án árangus

9 sept fundurSFR stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands og Landssamband lögreglumanna hafa verið í sameiginlegum viðræðum við Samninganefnd ríkisins um nokkurt skeið. Þegar hafa verið haldnir 6 fundir undir stjórn ríkissáttasemjara og lauk 7. fundi í dag án árangurs. Ekki hefur verið boðaður annar fundur í kjaradeilu félaganna við ríkið.

Samninganefnd ríkisins hefur ekki sýnt neinn vilja til að ræða þær sanngjörnu kröfur sem félögin hafa lagt fram sem byggja á þeim kjarasamningum sem ríkið hefur nú þegar gert við starfsmenn sína og niðurstöðum gerðardóms. Félögin munu nú þegar snúa sér til félagsmanna sinna til þess að ákvarða næstu skref. Staðan í kjaradeilunni er því grafalvarleg.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)