Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. september 2015

Fullt út úr dyrum í Háskólabíói

Baráttufundur í HáskólabíóBaráttufundur félagsmanna SFR, SLFI og LL í Háskólabíói var mjög kröftugur svo ekki sé meira sagt. Sterk skilaboð komu fram í ályktun fundarins sem samþykkt var með dynjandi lófataki. Sjá fleiri myndir hér.

Ályktun

Félagsmenn á baráttufundi fyrir bættum kjörum, í Háskólabíói 15. september 2015 kl. 17, krefjast þess að ríkisstjórn Íslands taki raunhæf skref í átt að lausn á kjaradeilu SFR, SLFÍ og LL við ríkið. Staðan er grafalvarleg. Ef ekkert verður að gert stefnir í að fleiri þúsund starfsmenn innan almannaþjónustunnar fari í aðgerðir með tilheyrandi áhrifum og álagi á samfélagið allt.

Félögin hafa lagt fram sanngjarnar, raunhæfar og skýrar kröfur. Þær byggja á þeim kjarasamningum sem ríkið hefur nú þegar gert við starfsmenn sína og niðurstöðum gerðardóms. Stjórnvöld hafa hins vegar sýnt félagsmönnum BSRB grímulaust virðingarleysi með því að bjóða þeim  miklu lakari kjarabætur. Félagsmenn SFR, SLFÍ og LL geta ekki með nokkru móti sætt sig við framkomu stjórnvalda og harma afstöðu þeirra og það virðingarleysi sem birtist í tilboði þeirra og ekki síður í umfjöllun stjórnvalda um ríkisstarfsmenn.

Fundurinn krefst þess að félagsmönnum SFR, SLFÍ og LL verði ekki mismunað með þessum hætti. Tilboð samninganefndar ríkisins er til þess gert að ýta undir aukna misskiptingu og breikka bilið á milli hópa sem leiðir til aukins ójafnaðar.

Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefndir félaganna í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið og lýsir því yfir að samningar um eitthvað minna en aðrir hafa fengið verða felldir. Það er grundvallaratriði að félagsmenn SFR, SLFÍ og LL fái sanngjarnar leiðréttingar á kjörum sínum í samræmi við aðra samninga sem ríkisvaldið hefur þegar gert við starfsmenn sína, sem og það sem gerðardómur hefur ákvarðað.

Umfjöllun um fundinn má meðal annars finna hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)