Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

9. október 2015

Enn er tími!

IMG_0417Formenn SFR, SLFÍ og LL hittu ásamt fjölda félagsmanna Sigmun Davíð forsætisráðherra nú í morgun í stjórnarráðinu í upphafi ríkisstjórnarfundar. Þar afhentu þau ráðherra yfirlýsingu frá félögunum þar sem stjórnvöld voru hvatt til þess að semja áður en verkfall þúsunda ríkisstarfsmanna skellur á.

YFIRLÝSING FÉLAGANNA:

Félagsmenn SFR, SLFÍ og LL krefjast þess að stjórnvöld taki ábyrgð á þeirri stöðu og staðreynd að fleiri þúsund starfsmenn ríkisins eru á leið í verkfall með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir samfélagið allt!

Körfur okkar eru sanngjarnar og skýrar! Að við fáum sambærilegar kjarabætur og aðrir ríkisstarfsmenn! Að okkur verði sýnd sú lágmarks virðing að  hafa sjálfstæðan samningsrétt. Við sættum okkur ekki við virðingarleysi stjórnvalda  sem birtist í þeirri ákvörðun að leggja enn og aftur á borð, tilboð sem margsinnis hefur verið hafnað. 

Forsætisráðherra, ríkisstjórn. Það er enn tími!

Það er grundvallaratriði að við fáum réttlátar leiðréttingar á kjörum okkar til samræmis við aðrar stéttir hjá ríkinu, öllu öðru verður hafnað.

IMG_0367

IMG_0361

IMG_0358

IMG_0401

IMG_0417

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)