Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. október 2015

Samningafundur stendur enn yfir - nýjar hugmyndir á borðinu

Arni við skrifborð ...þungur a brunFundur samninganefndar ríkisins með samninganefnd SFR, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna stendur enn yfir. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, sagði að samninganefnd ríkisins hefði komið með nýja hugmynd sem þyrfti að skoða.


Árni Stefán sagði ekki hver þessi nýja hugmynd í samningaviðræðunum væri. Hann sagði þó að hún væri þess eðlis að samninganefndirnar hefðu ákveðið að leggja hana fyrir bakland sitt og fá álit þess á henni. Hann sagði að unnið yrði áfram að málinu á þessum grundvelli en taldi að það myndi taka nokkurn tíma. Verkfall sem á að hefjast á miðnætti og sagði Árni, og aðrir samningamenn launafólks, að þeir reiknuðu frekar með því að af verkfallinu yrði.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)