14. desember 2015
Jólaball 2015
Það var að venju mikið fjör á jólaballi SFR og St.Rv. sem haldið var í Gullhömrum síðastliðinn laugardag. Rúmlega 300 manns dönsuðu þar í kringum jólatré og skemmtu sér hið besta með jólasveinunum eins og myndirnar sýna. Fleiri myndir má sjá á facebook-síðu SFR.