31. desember 2015
Breytingar á úthlutunarreglum Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR
Nú um áramótin, eða 1. janúar 2016, taka gildi nokkrar breytingar á úthlutunarreglum Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR:
- Tannlæknastyrkur. Nú getur sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár sótt einu sinni um styrk vegna tannlæknakostnaðar á 24 mánaða fresti. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem er umfram 50.000 kr., að hámarki 100.000 kr., var áður 80.000 kr.
- Líkamsræktarstyrkur hækkar í 23.000 kr. úr 20.000 kr.
- Nú verður greitt 2.500 fyrir hverja heimsókn til sjúkraþjálfara, sjúkranuddara, hnykklæknis eða sambærilegs meðferðaraðila í stað 2.000 kr. áður.
- Einnig hækkar styrkur vegna áhættumatsskoðunar hjá Hjartavernd í 20.000 kr. úr 17.000 kr.
- Athygli skal vakin á því að nú mega kvittanir eða aðgerðardagsetningar aldrei vera eldri en 12 mánaða frá því að sótt er um og gögnum skilað inn. Undanskilið er tannlæknakvittanir.
- Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsgjöld síðastliðna 12 mánuði og er sú upphæð uppfærð um hver áramót. Árið 2016 skal félagsmaður greiða a.m.k. 20.000 kr. í félagsgjöld síðastliðna 12 mánuði til að fá fullan styrk. Hálfur styrkur er veittur þeim sem greiðir á bilinu 10.000-20.000 kr. í félagsgjöld síðastliðna 12 mánuði. Var 17.000 kr. á árinu 2015 til að fá fullan styrk og 8.500-17.000 til að eiga rétt á hálfum styrk.
Nýjar úthlutnarreglur er hægt að nálgast í heild sinni hér.