Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

5. janúar 2016

Auðvelt að tengjast í orlofshúsum SFR

029SFR hefur í samstarfi við Vodafone netvætt bæði íbúðir félagsins á Akureyri og í Reykjavík og einnig orlofshúsin í Munaðarnesi, Húsafelli, Skorradal, Kjarnabyggð og Hólasetri. Bráðlega verður einnig hægt að tengjast netinu á Arnarstapa og Vaðnesi í vor, þegar framkvæmdum þar lýkur.

Það eina sem gestir þurfa að gera til þess að tengjast netinu er að framkvæma nokkur einföld skref:

1. Tengjast routernum, leiðbeiningar til að tengjast er að finna í húsunum (hægt er að tengja allt að 32 tæki samtímis).

2. Velja gagnamagnspakka sem gestir telja að dugi þeim á meðan dvalartíma stendur (hægt að velja pakka sem endast í 3,7 eða 30 daga).

3. Greiða fyrir það gagnamagn sem valið er (greitt með debet- eða kreditkorti í gegnum greiðslugátt Valitor).

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)