5. janúar 2016
Nám um Vaktavinnu og lýðheilsu
Fræðslusetrinu Starfsmennt hefur verið falið að halda utan um námsleiðina Vaktavinna og lýðheilsa. Námið er ætlað stjórnendum sem skipuleggja vaktir og starfsfólki sem gengur vaktir. Þar sem álitamálin eru mörg er gert ráð fyrir að starfsmenn og stjórnendur sitji sömu námskeið, til að kynnast ólíkum sjónarmiðum og auka gagnkvæman skilning. Aðilar á vinnumarkaði vilja með þessu námi tryggja að þeir stjórnendur sem skipuleggja vinnu á vöktum og starfsmenn sem ganga vaktir eigi þess kost að sækja námskeið í gerð vaktskráa sem taka mið af líkamsklukku og heilsuvernd.
Um er að ræða þrár námslotur og þarf að ljúka fyrstu námslotu til að geta tekið námslotu tvö og svo framvegis.
Smelltu á nafn hverrar lotu til að skrá þig og fá nánari upplýsingar.
1. Lýðheilsa og vaktir, 1. og 2. febrúar (12 klst.).
2. Umgjörð kjarasamninga, 8. febrúar (6 klst.).
3. Vaktavinnufyrirkomulag og vinnumenning, 15. og 16. febrúar (12 klst.).
Alls er námsleiðin 30 klukkustundir.
Sjá nánar hér.