Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

1. mars 2016

Andstaða við einkavæðingu

Stjórn BSRB hefur mótmælt harðlega áformum heilbrigðisráðherra um einkavæðingu heilsugæslustöðva og tekur SFR stéttarfélag í almannaþjónustu heilshugar undir það. Það ætti að vera skýrt markmið stjórnvalda að allur mögulegur „hagnaður“ af rekstri heilbrigðisþjónustu renni beint til frekari uppbyggingar þjónustunnar en ekki í vasa einkaaðila. Heilsa fólks og heilbrigði getur aldrei orðið eins og aðrar vörur á markaði.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnt breytingar á fyrirkomulagi heilsugæslunnar en áformað er að opna þrjár nýjar heilsugæslustöðvar til viðbótar við þær sautján sem nú eru starfandi. Til stendur að stöðvarnar verði einkareknar, í meirihlutaeigu þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem þar starfa.

Við fögnum að sjálfsögðu áformum um uppbyggingu heilsugæslunnar, sem er mikilvægur þáttur í íslenska heilbrigðiskerfinu en það er mikilvægt fyrir heilsu allra landsmanna að nýjar heilsugæslustöðvar verði fjármagnaðar af almannafé eins og þær sem fyrir eru, og starfi samkvæmt sama fyrirkomulagi.

Íslenskur almenningur er að stærstum hluta andvígur einkavæðingu heilbrigðiskerfisins, en fylgjandi félagslegu heilbrigðiskerfi, eins og ítrekaðar skoðanakannanir hafa sýnt fram á. Í rannsókn sem Rúnar Vilhjálmsson prófessor gerði í samvinnu við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands í fyrra kom fram að rúmlega 80% svarenda vilja að hið opinbera komi fyrst og fremst að rekstri heilsugæslustöðva. Aðeins um 1% töldu slíkum rekstri best fyrir komið hjá einkaaðilum.

Við leggjumst alfarið gegn áformum heilbrigðisráðherra um einkavæðingu heilsugæslustöðva og köllum eftir opinberri umræðu áður en afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar.

Hér að neðan má sjá ályktun stjórnar BSRB vegna málsins. Hún var gerð 7. desember síðastliðinn, en er enn í fullu gildi.

Ályktun stjórnar BSRB um útboð á rekstri heilsugæslustöðva

Stjórn BSRB mótmælir þeim áformum heilbrigðisráðherra að bjóða út rekstur heilsugæslustöðva. Ljóst þykir að til standi að auka aðkomu einkaaðila að rekstri heilbrigðisþjónustunnar og það hyggst heilbrigðisráðherra gera án þess að ræða málið sérstaklega á Alþingi eða fara að vilja almennings í þeim efnum.

Landsmenn hafa í skoðanakönnunum ítrekað lýst yfir víðrækum stuðningi við félagslegt heilbrigðiskerfi og hafnað leiðum einkavæðingar. Í rannsókn prófessors Rúnars Vilhjálmssonar sem framkvæmd var af Félagsvísindastofnun fyrr á árinu kom fram að rúm 80% svarenda telja að hið opinbera eigi fyrst og fremst að koma að rekstri heilsugæslustöðva á meðan aðeins 1% taldi slíkum rekstri best komið fyrir hjá einkaaðilum.

Vilji landsmanna er skýr: að hið opinbera eigi og sjái um rekstur heilbrigðisþjónustu á landinu. Þótt hugmyndafræði heilbrigðisráðherra gangi út á að auka skilvirkni og hagræði hefur reynsla víða annars staðar frá sýnt fram á hið gagnstæða. Rannsóknir og samanburður á ólíku fyrirkomulagi heilbrigðisþjónustu hefur jafnframt sýnt að félagslegu heilbrigðiskerfin – líkt og það sem við búum nú við – stuðla að bættri lýðheilsu, jafnara aðgengi að þjónustunni og eru þar að auki hagkvæmari í rekstri en einkareknu kerfin.

Þess vegna leggst stjórn BSRB alfarið gegn áformum heilbrigðisráðherra. Heilsa fólks og heilbrigði getur aldrei orðið eins og aðrar vörur á markaði. Það á að vera skýrt og yfirlýst markmið stjórnvalda að allur mögulegur „hagnaður“ af rekstri heilbrigðisþjónustu eigi að fara til frekari uppbyggingar heilbrigðisþjónustunnar en ekki enda í vasa einkaaðila.

Reykjavík 7. desember 2015

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)