Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. mars 2016

Orlofsblað SFR í vinnslu

20160224_170700_resizedOrlofsblað félagsins er nú á lokametrunum í vinnslu og mega félagsmenn búast við því í lok næstu viku. Við minnum á að það getur verið afar sniðugt að geyma Orlofsblaðið þar sem í því er að finna allar mögulegar upplýsingar um orlofshúsin okkar og ítarlegar leiðbeiningar um úthlutanir og bókanir. Meðal nýjunga í sumar má nefna orlofshús á Kiðjabergi Grímsnesi og íbúð á Hólum í Hjaltadal, þá munu öll hús SFR í Vaðnesi verða til leigu fyrir félagsmenn í sumar, nýendurbætt. Félagsmenn munu nú einnig geta keypt gjafabréf í pakkaferðir Úrvals Útsýnar í sumar.

Opnað verður fyrir umsóknir til þess að sækja um orlofshús innanlands í sumar 14. mars. Frestur til þess að sækja um verður til og með 13. apríl. Sérstakt umsóknareyðublað fyrir félagsmenn lífeyrisdeildar mun fylgja orlofsblaðinu.

Opnað verður fyrir bókanir dagleiguhúsa innanlands 27. apríl, þá geta allir sótt um.

Opnað verður fyrir sumarleigu í Kaupmannahöfn 29. mars.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)