4. mars 2016
Nýr orlofsmöguleiki Kiðjaberg í Grímsnesi
Nýtt hús hefur bæst við úrval orlofshúsa fyrir félagsmenn SFR. Húsið er á Kiðjabergi við Grímsnes og er 90 fm að stærð + gestahús sem er 20 fm. Gistiaðstaða í aðalhúsi er fyrir 6-8 og 2 í gestahúsi. Stór verönd er í kringum húsin en þar er ekki heitur pottur, en stutt í sundlaugar í nágrenninu sem og vinsæla golfvelli.
Hægt verður að bóka í húsið frá 18. mars og fram að sumarleigu. Húseigandi er með húsið á sínum vegum þangað til og er það ekki niðurgreitt til félagsmanna fyrr en við tökum það á leigu í sumar. Fyrstu tvær næturnar kosta 18.000 kr og 4.000 kr. hver viðbótarnótt eftir það. Húseigandi fær greitt það sem leigist út jafnóðum og því er ekki um endurgreiðslu á leigu að ræða hætti fólk við nema að það takist að leigja húsið út aftur.