7. mars 2016
Stutt nám með starfi
Flestir hafa nóg að gera í því að stunda vinnu, sjá um fjölskyldu og sinna áhugamálum. Það er þó mikilvægt að gefa sér tíma til að huga að símenntun og bæta við þekkingu en þannig styrkjum við stöðu okkar á vinnumarkaði.
Hér fyrir neðan má sjá hvað er á döfinni hjá Starfsmennt á næstu vikum en nánari upplýsingar er að finna á vefnum okkar, www.smennt.is.
Nám og þjónusta Starfsmenntar er án endurgjalds fyrir félagsmenn SFR.
Nám fyrir alla
20 góð ráð í þjónustusímsvörun - 2. mars
8 lyklar að árangursríkum tölvupóstum - 2. mars
Upplýsinga- og skjalastjórnun - 10. mars
Rekspölur - 8. apríl
Vönduð íslenska - 13. apríl
Tölvunámskeið
Excel töflureiknir / grunnur - 8. mars Nýtt
Word ritvinnsla / grunnur - 8. mars Nýtt
Tölvuleikni / Windows stýrikerfið - 8. mars Nýtt
Myndvinnsla og myndavélar - 5. mars
Fjársjóður Google og vefgerð - 15. mars
Upplýsingamiðlun / Publisher - 15. mars
Hugarkort / Mind Mapping - 5. apríl
Word ritvinnsla / framhald - 5. apríl
Jafnlaunastaðall
Vegna mikillar eftirspurnar verða námskeiðin fjögur í jafnlaunastaðlinum sem haldin voru fyrr í vetur haldin aftur í apríl og maí.
Námskeiðin eru í boði í stað- og fjarnámi.
Smelltu hér til að skrá þig.
Vaktavinna og lýðheilsa
Fyrr í vetur héldum við í fyrsta skipti nám um áhrif vaktavinnu og lýðheilsu. Námið mæltist sérstaklega vel fyrir og ákváðum við því að bjóða það aftur með vorinu, bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Smelltu hér til að skrá þig.