Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. mars 2016

Orlofsblaðið á leiðinni

forsida netOrlofsblað SFR fer í póst til félagsmanna í dag. Í blaðinu eru kynntir allir orlofsmöguleikar sem félagsmönnum standa til boða. Þar eru ítarlegar lýsingar og myndir af orlofshúsum, leiðbeiningar um úthlutun og bókanir og margt fleira gagnlegt og skemmtilegt. Orlofssjóður á 32 eignir sem leigðar eru út til félagsmanna og leigir auk þess um 10 hús til viðbótar víða um land til afnota fyrir félagsmenn auk íbúðar í Kaupmannahöfn.

Þá standa félagsmönnum til boða gjafabréf (afsláttur) í flug bæði innanlands og til útlanda, afsláttur á gistingu á hótelum, veiðikort, útlegukort og fleira. Í vor er einnig í fyrsta sinn boðið upp á að kaupa afsláttarbréf í ferðir með Úrval Útsýn Sumarferðum. Með blaðinu til lífeyrisþega er eyðublað sem fylla þarf út til að sækja um úthlutun í sumar. Allir aðrir félagsmenn sækja um á orlofsvefnum og er umsóknarfrestur fyrir sumarúthlutun 13. apríl næstkomandi. Opnað hefur verið fyrir umsóknir.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)