31. mars 2016
Aðalfundur SFR
Aðalfundur félagsins var haldinn miðvikudaginn 30. mars. Dagskrá fundarins var með hefðbundnum hætti og rakti formaður félagsins Árni Stefán Jónsson viðburði og áherslur síðasta árs í ársskýrslu. Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri fór yfir reikninga og fjárhagsáætlun. Samþykktar voru lagabreytingar þar sem m.a. var sett inn í lög félagsins að starfrækja skuli háskóladeild innan SFR og möguleikar formanns til þess að gegna embætti voru lengdir úr fjórum kjörtímabilum í fimm.
Að venju var tilkynnt um val á trúnaðarmanni ársins en að þessu sinni hlaut Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko heiðurinn. Elín Helga hefur um árabil sinnt trúnaðarstörfum fyrir félagið og voru kraftar hennar í undanþágunefnd í verkfallinu í haust félaginu ómetanlegir.
Þá ályktaði fundurinn um eftirtalin málefni:
Ályktun aðalfundar SFR stéttarfélags í almannaþjónustu um kjaramál
Ályktun aðalfundar SFR stéttarfélags í almannaþjónustu um húsnæðismál
Ályktun aðalfundar SFR stéttarfélags í almannaþjónustu um almannaþjónustuna
Ályktun aðalfundar SFR stéttarfélags í almannaþjónustu um TISA