11. maí 2016
Afmæli lífeyrisdeildar SFR - kaffisamsæti 28. maí
Í lok maí fagnar lífeyrisdeild SFR 40 ára afmæli sínu. Af því tilefni býður SFR félagsmönnum í LSFR til kaffisamsætis sem haldið verður á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, laugardaginn 28. maí kl. 15:00. Nauðsynlegt er að skrá sig sem fyrst, en velkomið er að bjóða með sér einum gesti.
Aðild að deildinni eiga þeir félagsmenn sem hætt hafa störfum vegna aldurs eða varanlegrar örorku. Með þátttöku í deildinni geta félagsmenn ef þeir þess óska, haldið góðum tengslum við félagið, haft afnot af orlofshúsum auk þess sem þeim standa til boða ferðir og fleira skemmtilegt. Félagsmenn í lífeyrisdeild SFR eru nú rúmlega 1100 talsins. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu SFR í síma 525 8340.