7. september 2016
Gott að vita námskeið SFR og St.Rv .
Eins og vanalega munu SFR og St.Rv. bjóða félagsmönnum sínum upp á spennandi námskeið og fyrirlestra undir heitinu Gott að vita í vetur. Fyrstu námskeiðin fara af stað í byrjun október og meðal þess sem boðið verður upp á að þessu sinni eru námskeið um meðvirkni, núvitund, konfektgerð, prjónaskap, matarsóun, skapandi skrif, framkomu og sjálfstraust svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðin verða auglýst í Blaði stéttarfélaganna sem væntanlega mun berast félagsmönnum í kringum 21. september en þá verður einnig opnað fyrir skráningar á námskeiðin. Nákvæm dag- og tímasetning verður auglýst þegar nær dregur.