19. september 2016
Trúnaðarmannaráð fundar
Nú stendur yfir fyrsti trúnaðarmannafundur vetrarins og er hann fjölmennur að venju. Á fundinum kynnti Tómas Bjarnason frá Gallup niðurstöður nýrrar launakönnunar SFR sem verða einnig kynntar ítarlega hér á vefnum eftir nokkra daga. Þá fjallaði Árni Stefán Jónsson formaður SFR um nýtt samkomulag sem undirritað var í morgun um nýtt lífeyriskerfi og jöfnun launa. Með samkomulaginu er tryggt að allt launafólk í landinu njóti sambærilegra lífeyrisréttinda hvort sem það starfar á opinberum eða almennum vinnumarkaði. Þá hafa ríki og sveitarfélög einnig skuldbundið sig með samkomulaginu að leiðrétta launamun á milli opinbera markaðarins og hins almenna á næstu 6-10 árum auk þess sem launaskriðstrygging tekur nú gildi strax. Alma L. Jóhannsdóttir sérfræðingur á kjarasviði SFR kynnti síðan fyrirhugaða fræðslu til trúnaðarmanna og stjórnanda vegna nýrra stofnanasamninga og nýrrar launatöflu sem taka á gildi í júní 2017. Að lokum verður nýr vefur félagsins kynntur fyrir trúnaðarmönnum.