Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

23. september 2016

Krefjumst breytinga #betrafæðingarorlof

BSRB og ASÍ hafa tekið höndum saman um að krefja stjórnvöld um breytingar á fæðingarorlofskerfinu. Til að sýna mikilvægi þess að búa við gott fæðingarorlofskerfi hvetjum við fólk til að segja sína sögu í stuttu máli á samfélagsmiðlum og merkja með myllumerkinu #betrafaedingarorlof.

Ömmur, afar, mömmur og pabbar - deilum reynslusögum okkar sögur á facebook eða twitter og merkjum #betrafæðingarorlof - þannig söfnum við saman sögunum á einn stað.

Fylgstu með á Facebook-síðu átaksins, Betra fæðingarorlof.

Markmið fæðingarorlofslaga er að börnum sé tryggð samvera við báða foreldra og að konum og körlum sé kleift að samræma fjölskyldu og atvinnulíf. Rannsóknir sýna að núverandi kerfi tryggir ekki að þetta markmið nái fram að ganga. 

Til dæmis hefur þátttaka feðra minnkað um 40% frá því fyrir hrun og fæðingartíðni er í sögulegu lágmarki. Þá hefur hámarksupphæð lækkað verulega á undanförnum árum, á meðan verðlag á húsnæði og nauðsynjavörum hefur hækkað. Staða þeirra foreldra sem fara í fæðingarorlof er allt annað en öfundsverð.

Það er forgangsmál að endurskoðun eigi sér stað og horft verði til framtíðar. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um nauðsyn endurskoðunar og að breytinga sé þörf hefur ekki verið brugðist við.

Kröfur BSRB og ASÍ eru: 

Greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi verði óskertar upp að 300.000 kr.
Hámarksgreiðslur verði 600.000 kr.
Fæðingarorlof verði 12 mánuðir.

Átt þú sögu til að deila? Hvernig er þín reynsla? #betrafaedingarorlof

Fylgstu með umræðunni á Facebook-síðu átaksins, Betra fæðingarorlof

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)