Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

26. september 2016

Launakönnun SFR

SFR birtir nú niðurstöður úr launakönnun sinni tíunda árið í röð. Hækkun heildarlauna hjá SFR félögum eru tæp 9% milli ára. Á sama tíma mældist hækkun launavísitölu Hagstofunnar fyrir allan vinnumarkaðinn um 9,4%. Enn mælist töluverður launamunur milli opinbera og almanna markaðarins en könnunin er gerð í samstarfi við VR og St.Rv. sem hjálpar okkur að fylgjast vel með launaþróun á milli vinnumarkaða. Sjá nánar.

 

Sameiginleg fréttatilkynning Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu

Vonbrigði með launamun

Árleg launakönnun SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (St.Rv.) sem framkvæmd er af Gallup leiðir í ljós að hækkun heildarlauna hjá félögunum eru tæp 9% milli ára. Á sama tíma mældist hækkun launavísitölu Hagstofunnar fyrir allan vinnumarkaðinn um 9,4%. 

Launakönnunin er unnin í samvinnu við VR og gefur góða mynd af mismuninum milli launaþróunar félaga á opinberum og almennum vinnumarkaði. Ekki kemur á óvart, þótt það séu sannarlega vonbrigði að enn og aftur eru laun starfsmanna á almennum markaði (VR) töluvert hærri en laun opinberra starfsmanna (SFR & St.Rv.) Þannig hefur það verið í öllum könnunum félaganna frá upphafi mælinga.

Samkvæmt könnuninni eru heildarlaun VR félaga allt að 30% hærri, þar sem meðalheildarlaun félagsmanna í VR eru tæplega 597 þúsund á mánuði, en þau eru um 458 þúsund hjá SFR félögum og tæp 483 þúsund hjá St.Rv. Eftir að tekið hefur verið tillit til áhrifaþátta sýna niðurstöður hins vegar að félagsmenn VR hafa 15% hærri laun en félagsmenn SFR og 16% hærri laun en félagsmenn St.Rv.

Baráttan við launamun kynjanna er sameiginleg öllum félögunum sem að launakönnununum standa. Munur á heildarlaunum karla og kvenna samkvæmt niðurstöðum kannananna nú er 20%  hjá SFR og 13% hjá St.Rv. Kynbundinn launamunur milli karla og kvenna, þ.e. sá munur sem situr eftir þegar búið er að taka tillit til þátta sem hafa áhrif á launin s.s. vaktaálags, starfsstéttar, starfsaldurs, vinnutíma, aldurs, atvinnugreinar og mannaforráða er hins vegar 11,8% hjá félagsmönnum SFR, en 6,1% ef skoðaðir eru allir félagsmenn St.Rv. Munur á launum karla og kvenna sem starfa hjá Reykjavíkurborg er hins vegar 4,1%.

Ef prósentunni á kynbundnum launamun kynjanna er snúið upp í fjölda daga má segja að konur í St.Rv. vinni alls 16 launalausa daga og SFR konur vinni 31 launalausan dag á ári. Þessar tölur eru fengnar eftir að áhrifaþættir hafa verið reiknaðir frá, hér er því einungis byggt á kynbundnum launamun.

Ef reikningsdæmið um launalausu dagana hugnast fólki má með sama hætti nota það til að bera saman laun á milli opinbera og almenna markaðarins og segja að félagsmaður hjá SFR vinni 42 launalausa daga og St.Rv. félagar vinna 39 launalausa daga á ári ef miðað er við laun VR félaga.

Við getum notað margs konar reikningsaðferðir til að sýna fram á launamismun, bæði á milli kynjanna og einnig á milli atvinnumarkaða. Það sem skiptir hins vegar öllu máli hér er að við erum að tala um lífsviðurværi fólks, - launin þeirra fyrir dagsverkið. Niðurstöður þessarar kannanna eins og allra hinna sem félögin hafa birt á undanförnum árum sýna að ekki er jafnt gefið. Við þurfum einfaldlega að leiðrétta launin ef við ætlum okkur að ná fram jöfnuði. 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)