Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

3. október 2016

Áunnin réttindi sjóðfélaga verði varin

Stjórn BSRB kom saman í morgun til að ræða frumvarp um breytingar á lögum um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Að fundi loknum sendi stjórnin frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Stjórn BSRB telur að frumvarp til laga um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins endurspegli ekki samkomulag sem heildarsamtök opinberra starfsmanna og fulltrúar ríkis og sveitarfélaga undirrituðu 19. september síðastliðinn.
Samkvæmt samkomulaginu eiga réttindi núverandi sjóðfélaga að vera jafn verðmæt fyrir og eftir breytingarnar. Frumvarpið tryggir ekki að svo sé.

BSRB mun leggja til að gerðar verði breytingar á frumvarpinu í umsögn sem send verður fjárlaganefnd Alþingis á morgun og kynnt nánar af fulltrúum bandalagsins á fundi með nefndinni. Ef ekki verða gerðar þær breytingar sem bandalagið leggur fram í umsögn sinni er ljóst að BSRB mun ekki styðja frumvarpið.
Verði ekki fallist á athugasemdir bandalagsins fer stjórn þess fram á að Alþingi afgreiði ekki frumvarpið í þeirri mynd sem það er núna.

Tillögur BSRB að breytingum á frumvarpinu verða lagðar fram í umsögn bandalagsins á morgun. Efnislega eru þær eftirfarandi:
 Tryggja þarf að réttindi sjóðfélaga í A-deild LSR verði jafn verðmæt eftir breytingar á skipan lífeyrismála. Skýrt þarf að vera að þar sé átt við réttindi þeirra sem eru að greiða í sjóðinn eða hafa greitt í sjóðinn, sem og þeirra sem hafa hafið töku lífeyris.
 Tryggja þarf að hafi sjóðfélagi unnið sér inn rétt til lífeyrisauka haldist sá réttur þrátt fyrir að viðkomandi skipti um starf, haldi hann áfram aðild að A-deild LSR.
 Útlista þarf nákvæmlega hvernig iðgjaldagreiðslum annarra launagreiðenda en ríkis og sveitarfélaga verður háttað eftir breytingar.
 Kveða þarf skýrt á um að ef sú upphæð sem sett hefur verið í varúðarsjóð dugi ekki til, sé það hlutverk opinberra launagreiðenda að bregðast við.

Stjórn BSRB lýsir yfir vonbrigðum með að ekki sé farið eftir því samkomulagi sem undirritað hefur verið við vinnslu frumvarpsins. Stjórnin skorar á þingmenn að gera nauðsynlegar breytingar til að verja áunnin réttindi sjóðfélaga í lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)