Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

3. október 2016

BSRB og ASÍ efna til samkeppni

BSRB og Alþýðusamband Íslands efna til samkeppni um nafn á íbúðaleigufélagi sem starfa mun leigja út íbúðir til fólks með lágar- og meðaltekjur og verður rekið án hagnaðarmarkmiða. Höfundur bestu tillögunar fær 50 þúsund krónur í verðlaun.

Nýtt íbúðafélag ASÍ og BSRB mun starfa í nýju íbúðakerfi sem verið er að taka upp hér á landi. Kerfið byggir á danskri fyrirmynd og er því ætlað að verða hagstæður og öruggur valkostur fyrir fólk á leigumarkaði.

Íbúðfélagið er sjálfseignastofnun sem starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir og er rekin án hagnaðarrmarkmiða. Skilyrði er að íbúðirnar verði leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur.

Íbúðafélagið hefur undirritað viljayfirlýsingu við Reykjavík og Hafnarfjarðabær um lóðir fyrir 1.150 íbúðir á næstu fjórum árum. Undirbúningur framkvæmda vegna 180 íbúða mun hefjast á þessu ári. Samhliða þessum fyrstu skrefum vinnur íbúðafélagið að lausn fyrir sveitafélög á landsbyggðinni.

Félagið óskar eftir tillögum um nafn á félaginu. Nafnið skal vera þjált í notkun og ýta undir jákvæða ímynd félagsins.
Tillögur sendar í tölvupósti

Tillögum um nöfn þarf að skila inn í síðasta lagi fyrir miðnætti þann 16. október. Tillögur má senda á netfangið asi@asi.is eða bsrb@bsrb.is. Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu. Óskað er eftir því að nafn og símanúmer þess sem leggur fram tillöguna fylgi í tölvupóstinum.


Íbúðafélagið mun veita 50 þúsund króna verðlaun fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.

BSRB og ASÍ hvetja alla til að leggja höfuðið í bleyti og senda tillögur að nafni á nýju íbúðafélagi fyrir miðnætti 16. október.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)